19.01 2012

Átaksvika gegn leghálskrabbameini

Janúar er evrópskur átaksmánuður gegn leghálskrabbameini sem er næstalgengasta krabbamein meðal kvenna ef litið er til heimsins alls. Á hverju ári greinast í Evrópu 60.000 konur og 30.000 deyja af völdum þessa sjúkdóms. Við Íslendingar eigum því láni að fagna að á Íslandi er dánartíðni af völdum leghálskrabbameins einna lægst á heimsvísu vegna vel skipulagðrar leitar. Aðrar þjóðir, jafnvel innan Evrópu, geta ekki státað af slíkum árangri.

Leghálskrabbameinsleit á Íslandi

Með frumustroki frá leghálsi er unnt að greina leghálskrabbamein á forstigi eða á algeru byrjunarstigi (hulinstigi). Leitaraðferðin er notuð í mörgum löndum. Leghálskrabbameinsleit hófst hér á landi árið 1964.

Leitin beinist að konum á aldrinum 20-69 ára og eru þær boðaðar til skoðunar á tveggja til fjögurra ára fresti eftir aldri og fyrri leitarsögu. Árangurinn er ótvíræður og frá byrjun leitar hefur nýgengið lækkað um 71% og dánartíðnin um 93%. Tæpur helmingur þeirra kvenna sem greindust með leghálskrabbamein á tímabilinu 2001-2010 voru á hulinstigi sjúkdóms og keiluskurður, sem er minni háttar aðgerð, er þá í flestum tilfellum nægjanleg meðferð.

Varnaðarorð

Hér á landi deyr að meðaltali ein kona á móti hverjum átta sem greinast með sjúkdóminn en í Evrópu deyr ein á móti hverjum tveimur sem greinast. Þessi góði árangur er þó háður reglulegri mætingu kvenna til leitar. Það er því áhyggjuefni að leghálskrabbameinstilfellum hefur fjölgað á síðastliðnum tveimur árum aðallega hjá konum sem hafa aldrei mætt eða mætt mjög óreglulega til leitar og eru sumar þeirra með sjúkdóminn á háu stigi. Þessi staðreynd gefur tilefni til að hvetja konur á aldrinum 20 til 69 ára að sinna boðun Leitarstöðvar til leghálskrabbameinsleitar.

Hvetjum til undirskrifta

Evrópusamtökin ECCA (European Cervical Cancer Association: http://www.ecca.info) berjast fyrir því að allar evrópskar konur hafi sama rétt til bestu fáanlegra forvarna gegn þessum sjúkdómi.
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur borist beiðni frá ECCA um aðstoð við að safna undirskriftum á Íslandi fyrir „STOP Cervical Cancer Petition“ sem hvetur Evrópuþingið, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og ríkisstjórnir allra landa í Evrópu til að veita öllum evrópskum konum þennan rétt.

Markmið ECCA er að ná einni milljón áskorana en þann fjölda þarf til að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins taki þetta mál á málefnaskrá sambandsins. Þegar þessi grein er rituð er fjöldi áskorana um 940.000 og skortir þannig eingöngu um 60.000 áskoranir. Krabbameinsfélagið hvetur konur til að taka þátt í þessari áskorun með því að rita nafn sitt á vefslóð ECCA www.CervicalCancerPetition.eu

Vísdómsperlan, merki átaks gegn leghálskrabbameini

Konur geta einnig sýnt stuðning sinn með því að festa kaup á Vísdómsperlunni sem er auðkennismerki átaksverkefnisins en perlan fæst keypt hjá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð.

Til þess að vekja athygli á forvörnum gegn leghálskrabbameini og hvetja til virkari beitingar þeirra meðal Evrópuþjóða, ákvað ECCA að nota kunnuglegt tákn sem fólk gæti borið til að styðja þennan málstað. Í alþjóðlegri orðabók um orðatiltæki er Vísdómsperla talin tákna mikilvæga ráðgjöf og er hún því mjög viðeigandi tákn fyrir átak sem hvetur konur til þátttöku í forvörnum gegn leghálskrabbameini.
Jafnvel í löndum þar sem þetta orðatiltæki er ekki notað, tengjast perlur kvenleika og eru því sæmandi tákn. Evrópusamtök gegn leghálskrabbameini (ECCA) vinna með aðildarfélögum sínum, samstarfsaðilum og stuðningsfólki víða um Evrópu og með alþjóðasamtökum krabbameinsfélaga (UICC) að því að kynna Vísdómsperluna og átakið sem tengist henni.

Ágóði af sölu Vísdómsperlunnar verður notaður til að styðja við forvarnir gegn leghálskrabbameini víðsvegar um Evrópu.

Greinin er eftir Kristján Sigurðsson, yfirlækni Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins, og birtist í Morgunblaðinu 19. janúar 2012


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit