Fræðsla

Á liðnum árum hefur Krabbameinsfélag Íslands stundað öflugt fræðslustarf um krabbamein og heilbrigða lífshætti. Auk fjölda fræðslurita um einstök mein og leiðbeiningar um fyrirbyggjandi aðgerðir gefur félagið út tímaritið Heilbrigðismál.

Hægt er að nálgast rit Krabbameinsfélagsins og fjölmörg önnur fræðslurit sem snerta baráttuna gegn krabbameini hér á vefsíðunni.  Ennfremur er hægt að skoða fjölbreytt úrval greina sem birst hafa í dagblöðum og tímaritum á liðnum árum. 

Í veftrénu vinstra megin á þessari síðu er vísað á ýmsa fræðslu um einstakar tegundir krabbameins og í  leitarglugga efst til hægri má slá inn einstök efnisorð og finna efni á öllum síðum vefjarins, m.a. í netfréttum.

 

 

16.02 2011 - Miðvikudagur

Upplýsingafundur fyrir nýgreinda með blöðruhálskirtilskrabbamein

Framför: Rabbfundur fyrir nýgreinda með blöðruhálskirtilskrabbamein. Fulltrúar frá Framför, Þráinn Þorvaldsson og Hinrik Greipsson segja frá reynslu sinni og svara spurningum. Karlmenn nýgreindir með blöðruhálskiritlskrabbamein og makar þeirra eru velkomnir. Allar nánari upplýsingar hjá Ragnheiði tölvupóstur ragnalf@krabb.is. Tækifæri fyriri þá sem eru nýgreindir með blöðruhálskirtilskrabbamein að hitta aðra sem hafa gengið í gengum þá reynslu að greinast.

Fundurinn er haldinn í húsnæði Ráðgjafaþjónustunnar, Skógarhlíð 8, fyrstu hæð milli klukkan 17 og 18.

09.02 2011 - Miðvikudagur

Hádegisfyrirlestur um viðbótarmeðferðir (óhefðbundnar meðferðir)

Miðvikudaginn 9. febrúar kl. 12.00-13.00 verður Dr. Þóra Jenný Gunnarsdóttir með fyrirlestur um viðbótarmeðferðir (óhefðbundnar meðferðir). 

Hvað eru viðbótarmeðferðir, hver eru markmiðin með viðbótarmeðferðum og hvernig samþættast þær öðrum hefðbundnum meðferðum á sjúkrahúsum.

Fyrir fyrirlesturinn er boðið uppá hressingu og slökun.

Allir eru velkomnir.

Fyrirlesturinn er haldinn á fyrstu hæð í húsi Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, Reykjavík.









Skipta um leturstærð


Leit