Ingibjargarsjóður
Minningarsjóður Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnson var stofnaður árið 2000 og er í vörslu Krabbameinsfélags Íslands.
Um Ingibjörgu:Ingibjörg var fædd að Laugarbakka í Ölfusi 2. júní 1901 og ólst upp hjá Þórði Sigurðssyni frænda sínum á Tannastöðum. Um tvítugt sigldi hún til Kaupmannahafnar og nam þar húllsaum, plíseringar og alls konar sérhæfðan saumaskap. Þegar heim kom árið 1932 setti hún upp saumastofu sem hún rak til 1954 er hún fluttist alfarin til Bandaríkjanna og settist að í San Fransisco þar sem hún giftist Ralph Johnson, en hann lést árið 1986.
Ingibjörg lést árið 1997, 96 ára að aldri. Hún ánafnaði Þjóðminjasafni Íslands og Krabbameinsfélagi Íslands eigum sínum til helminga og er sjóður sá er við hana er kenndur afrakstur þess hluta sem fara átti til "rannsókna og lækninga á Íslandi". Sjóðurinn var í bandaríkjadölum og að andvirði 13.190.672 íslenskar krónur þegar hann var stofnaður. |  Ingibjörg Guðjónsdóttir Johnson og maður hennar, Ralph. |
Sjóðnum var kjörin stjórn sem í sitja eftirtaldir. Þorvaldur Árnason formaður, Kristbjörg Þórhallsdóttir og Árni Þór Árnason. Auglýst er eftir umsóknum um styrki í lok sumars. Reglur eru þær að úthluta má 80% af áunnum vöxtum og fara hin 20% til að efla sjóðinn. Stjórnin fer yfir styrkumsóknir og velur styrkþega miðað við það fjármagn sem er til ráðstöfunar hverju sinni.
Núverandi sjóðsstjórn:
- Guðrún Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, formaður.
- Árni Þór Árnason framkvæmdastjóri.
- Kristbjörg Þórhallsdóttir leiðsögumaður.
Styrkveitingar:
Árið 2002: 720.000 kr.
Árið 2003: 640.000 kr.
Árið 2004: 620.000 kr.
Árið 2005: 400.000 kr.
Upplýsingar