Fjölþætt starfsemi

Tilgangur Krabbameinsfélags Íslands er að styðja og efla í hvívetna baráttuna gegn krabbameini svo sem með því að auka þekkingu á sjúkdómnum, efla rannsóknir á honum, leita að krabbameini á byrjunarstigi og styðja framfarir í meðferð krabbameins og umönnun krabbameinssjúklinga. Segja má að Krabbameinsfélagið hafi einkum helgað sig forvörnum gegn krabbameini en heilbrigðisþjónusta hins opinbera fáist að mestu leyti við meðferð sjúkdómsins.

Krabbameinsfélag Íslands er byggt upp af þrjátíu aðildarfélögum (svæðafélögum og stuðningshópum sjúklinga). Aðalfundur, sem haldinn er árlega, kýs sjö manna stjórn sem kemur saman að jafnaði mánaðarlega til funda.

Leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum er umfangsmesta verkefni Krabbameinsfélagsins. Síðan 1964 hefur farið fram skipuleg leit að leghálskrabbameini á vegum leitarstöðvarinnar og að brjóstakrabbameini síðan 1973. Samkvæmt samningi við heilbrigðisyfirvöld sér félagið um skipulag og framkvæmd krabbameinsleitar, sem nær til kvenna á aldrinum frá tvítugu til sjötugs. Sumarið 2008 var tekin í notkun stafræn tækni við brjóstamyndatöu og ýmsar aðrar breytingar gerðar á starfsumhverfinu.

Krabbameinsskráin tók til starfa 1954. Safnað er upplýsingum um alla sem greindir eru með krabbamein. Úrvinnsla gagna miðar að því að afla þekkingar á orsökum og eðli krabbameins og er grunnur að faraldsfræðirannsóknum. Í tengslum við skrána er m.a. unnið að rannsóknum á fjölskyldufylgni (ættgengi) krabbameins.

Fræðsla og útgáfa eru stór þáttur í forvarnastarfi Krabbameinsfélagsins. Félagið gefur út tímaritið Heilbrigðismál og hefur á síðustu árum lagt áherslu á vefsíðuna krabb.is. Þar er mikill fróðleikur um krabbamein og nær daglega nýtt efni.

Stuðningur við sjúklinga og aðstandendur þeirra er eitt af forgangsverkefnum Krabbameinsfélagsins. Innan vébanda félagsins starfa sjö stuðningshópar krabbameinssjúklinga. Árið 2007 var sett á laggirnar Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins sem ætluð er þeim sem greinast með krabbamein og aðstandendum. Þar eru starfandi hjúkrunarfræðingur og félagsráðgjafi. Ýmis námskeið eru haldin fyrir sjúklinga og aðstandendur. Krabbameinsfélagið á átta íbúðir, ásamt öðrum, þar sem krabbameinssjúklingar af landsbyggðinni geta dvalið með fjölskyldu sinni meðan á meðferð stendur.

Skrifstofa félagsins sinnir stjórnun, þjónar áðurnefndum starfsdeildum og annast almenna afgreiðslu. Velta Krabbameinsfélags Íslands er um 600 milljónir króna á ári. Starfsmenn eru um 56 í um 43 stöðum. Helstu tekjustofnar eru ríkisframlag, gjöld fyrir veitta þjónustu og stuðningur almennings.

Markaðsmál hafa á síðustu árum hlotið meira vægi en áður. Krabbameinsfélagið hefur síðan árið 2000 skipulags árveknis- og fjáröflunarátak um brjóstakrabbamein í október undir merkjum „Bleiku slaufunnar“. Síðustu þrjú ár hefur marsmánuður verið helgaður átakinu „Karlmenn og krabbamein“.

Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur tekið að sér fræðslu um krabbamein, í nafni heildarsamtakanna. Þá gefur félagið út röð fræðslurita og annast rekstur happdrættis Krabbameinsfélagsins. Nokkur önnur svæðafélög hafa ráðið starfsmenn og opnað þjónustumiðstöðvar. Þessar miðstöðvar eru á Akranesi, á Ísafirði, á Sauðárkróki, á Akureyri, á Reyðarfirði, á Selfossi og í Keflavík.

Júní 2010.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit