Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 22. mars 2009. Fundurinn verður í húsakynnum Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 og hefst kl. 20.00.
Að loknum aðalfundarstörfum flytja Hólmfríður Gunnarsdóttir gestaprófessor við Háskóla Íslands og Laufey Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsskrárinnar og klínískur prófessor við Háskóla Íslands erindi sem ber yfirskriftina „Ójafnræði í heilsufari – krabbamein eftir starfsstéttum ”.
Kaffiveitingar. Nýir félagsmenn velkomnir.