kl. 12.00-13.00: Hádegisfyrirlestur: Lífið eftir meðferð, Eygló Guðmundsdóttir sálfræðingur fjallar um lífið eftir krabbameinsmeðferð. Eftir meðferð finna sumir fyrir tómarúmi og það sé eins og þeir hangi í lausu lofti. Hvað nú, hvað svo, hvernig tekst ég á við eðlilegan hversdagsleika, hvernig eflum við fjölskyldulífið? Allir velkomnir. Boðið er upp á te/kaffi og brauð. Við byrjum með slökun kl. 12.00-12.10, fyrirlestur 12.10-12.40 og umræður til kl. 13.00.