kl. 17.00-19.00: Ásdís Olsen. Vinnusmiðja, jákvæð sálfræði og gjörhyggli. Meiri hamingja - vinnustofa. Við getum öll verið hamingjusöm hverjar sem aðstæður okkar eru. Hin byltingarkennda jákvæða sálfræði fer nú sigurför um heiminn og miðlar hagnýtum upplýsingum sem gagnast venjulegu fólki til að auka hamingjuna í daglegu lífi. Í vinnustofunni kynnir Ásdís Olsen okkur þessar aðferðir jákvæðu sálfræðinnar og leiðir sjálfsskoðun og gjörhygli - hugleiðslu (Mindfulness). Ásdís Olsen er menntunarfræðingur og kennari í lífsleikni við Háskóla Íslands. Hún hefur stundað nám í jákvæðri sálfræði, hugrænni atferlismeðferð og gjörhygli (Mindfulness). Hún kom að útgáfu bókarinnar "Meiri hamingja" nú um jólin. Skráning
ragnalf@krabb.is.