3.3.2010 - Miðvikudagur
Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 3. mars 2010, kl. 17.00.
Gestur fundarins er Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Hann ætlar að fjalla um veðurfar, gróðurhúsaáhrif o.fl.
Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.
16.3.2010 - Þriðjudagur
Samhjálp kvenna verður með fræðslufund (opið hús) í Skógarhlíð 8, húsi Krabbameinsfélagsins, 4. hæð, þriðjudaginn 16. mars 2010 kl. 20.00. Dr. Eiríkur Örn Arnarson sálfræðingur ræðir um svefn og svefnleysi. Veitingar. Takið með ykkur gesti, maka, ættingja eða vini!