17.08 2012

Hvetjum hlauparana áfram

Krabbameinsfélag Íslands ætlar að vera með stuðningssvæði hjá Látraströnd á Seltjarnarnesi á laugardaginn. Við hvetjum alla stuðningsmenn Krabbameinsfélagsins og þeirra sem hlaupa til styrktar því að koma þar saman og hvetja hlauparana áfram. Það verður mikil hópstemmning og gaman að sem flestir myndu koma. 

Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, ætlar að opna heimili sitt fyrir stuðningslið þeirra sem hlaupa fyrir Krabbameinsfélagið og aðildarfélög þess þ.á.m. Kraft. Ragnheiður býr að Látraströnd 21 svo það er stutt frá hvatningarstað, en fáni Krabbameinsfélagsins verður dreginn þar að hún. Þar verður boðið upp á kaffi og bakkelsi frá Myllunni sem og djús og vatn og að sjálfsögðu salernisaðstöðu. Gera má ráð fyrir að nærliggjandi götum verði lokað vegna hlaupsins, og því kann að vera skynsamlegt að mæta ekki mikið seinna en upp úr kl. 08:30. Hvetjum sem flesta að mæta á reiðhjóli því þá tekur svo stuttan tíma að hjóla svo niður í bæ þrátt fyrir lokanir á götum.  

Hlökkum til að sjá ykkur og aftur innilegar þakkir fyrir að styrkja Krabbameinsfélag Íslands. 


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit