14.08 2012

Hlupu saman á Happ í fyrirlestur og súpu

Mánudaginn, 13. ágúst, buðu Kraftur og Krabbameinsfélagið (og önnur aðildarfélög þess) þeim hlaupurum sem hlaupa til styrktar félagana á hlaupaæfingu. Hlaupið var frá húsi Krabbameinsfélags Íslands í Skógarhlíðinni í Höfðatún þar sem boðið var upp á fyrirlestur og súpu og brauð. 

Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur var með fyrirlestur um næringu fyrir hlaup og Sigurður P. Sigmundsson, fyrrum Íslandsmethafi í maraþoni, talaði um undirbúningum fyrir hlaup. Húsfyllir var á Happ og svöruðu þeir félagar einnig spurningum viðstaddra um hlaup, næringu og undirbúning. 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit