10.08 2012

Súpa og fyrirlestur í boði Krabbameinsfélagsins og Krafts

Á mánudaginn ætla Kraftur og Krabbameinsfélag Íslands (og önnur aðildarfélög þess) að bjóða öllum þeim sem hlaupa til styrktar félögunum á stutta hlaupaæfingu sem endar í súpu og brauði hjá Happ á Höfðatorgi. Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur, verður með fyrirlestur um næringu fyrir hlaup og Sigurður P. Sigmundsson, fyrrum Íslandsmethafi í maraþoni, svarar spurningum viðstaddra um hlaup og undirbúning. 

Mæting er í hús Krabbameinsfélagsins  mánudaginn, 13. ágúst, kl. 19:00 en það þarf að skrá sig á mánudaginn fyrir klukkan 15:00 með því að senda póst á valdi@kraftur.org eða laila@krabb.is. Þau sem vilja fá síðan far frá Höfðatorgi í Skógarhlíðina að kvöldstund lokinni, en áætluð lok eru um 20:30.

Hlökkum til að sjá ykkur.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit