08.08 2012

Pizzur bakaðar til styrktar Krabbameinsfélags Akureyrar

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu var haldin á Akureyri um Verslunarmannahelgina og var dagskráin fjölbreytt sem endra nær. Nýr dagskrárliður var á hátíðinni er nefnist Pabbar og pizzur og var til styrktar Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. 

Pabbar gátu þar sýnt og sannað kunnáttu sína í pizzugerð og rann ágóðinn eins og fyrr var getið til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Alls söfnuðumst um 350 þúsund krónur á viðburðinum. Stefnt er að því að þetta verði árlegur viðburður á Einni með öllu. 




Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit