31.07 2012

Dregið úr þjónustu leitarstöðvarinnar

Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður stjórnar Krabbameinsfélagsins var í viðtali á RÚV nýverið þar sem hún segir að Krabbameinsfélag Ísland hafi þurft  að skerða þjónustu leitarstöðvar sinna vegna ónógra fjárveitinga. 
Sigríður segir að fjárveitingar til leitarstöðvarinnar að undanförnu hafi ekki dugað til að hægt sé að veita þá þjónustu sem henni beri að veita. Því hafi verið gripið til þess að þrengja aðgang að stöðinni, lengja bilið milli heimsókna.

Skortur á röntgenlæknum

„Annað vandamál sem við höfum haft áhyggjur af er að við höfum minni aðgang að röntgenlæknum en áður,“ bætir Sigríður við. „Það er skortur á röntgenlæknum. Þeirra hlutverk er að lesa úr öllum brjóstamyndum. Þetta vandamál getum við kannski ekki sagt að tengist hruninu beint.“

Beðið eftir fjárlögum

Sigríður segir að af þessum sökum hafi orðið að draga úr þjónustunni, „og ég sé hana hugsanlega fara minnkandi á næstu mánuðum og árum nema við fáum meiri fjárveitingar. Það lítur svo sem. ekkert byrlega út í augnablikinu en við verðum að bíða og sjá hvað kemur út úr fjárlögunum í haust. Í framhaldi af því verðum við að skoða málið.“



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit