02.08 2012

Flóamarkaður til styrktar Krabbameinsfélaginu

Í gær komu fjórar ungar stúlkur í heimsókn til okkar í Skógarhlíð 8 en þær höfðu nýverið haldið tvo flóamarkaði til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Annar var haldinn á vorhátíð Foldaskóla og hinn fyrir utan Nettó í Grafarvogi. Alls söfnuðu þær 6.919 kr sem þær afhentu í heimsókn sinni.

Þessar gjafmildu stúlkur heita Guðný Lára, Elísa Rós, Guðrún María og Viktoría Rós og færum við þeim bestu þakkir fyrir frábært framlag.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit