Þeir sem hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu 18. ágúst næstkomandi geta skráð sig á Hlaupastyrk og hlaupið fyrir ýmis góðgerðarfélög. Björn Bragi Arnarsson, sjónvarpsmaður, stefnir á að hlaupa heilt maraþon til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.Hann tók viðtal við Ragnheiði Haraldsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélagsins, á dögunum sem sjá má
hér.
Björn Bragi hefur sett sér það markmið að safna 500.000 krónum en sjálfur ætlar hann að gefa 100.000 krónur ef það tekst. Upplýsingar um þau sem hlaupa til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands er að finna
hér og unnt er að skrá sig á Hlaupastyrk
hér.