27.06 2012

Krabbameinsfélag Ísland á afmæli í dag og kveður um leið starfsmann

Krabbameinsfélag Íslands fagnar 61. árs afmæli sínu í dag. Í tilefni af því gæddu starfsmenn sér á lambalæri í hádeginu. Á sama tíma og afmælinu var fagnað var Sigríður Jónasdóttir kvödd. Sigríður lætur nú af störfum hjá Krabbameinsfélaginu en hún hefur starfað hjá okkur í 31 ár. 

Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, kvaddi Sigríði og voru  henni afhentar gjafir frá félaginu og starfsmönnum. „Hvernig getur maður þakkað fyrir öll þessi ár sem Sigga hefur gefið okkur. Hún hefur verið hér andlit félagsins í svo mörg ár og unnið fórnfúst starf. Hennar verður svo sannarlega saknað í Skógarhlíðinni“, sagði Ragnheiður. Sigríður ætlar að vera dugleg að heimsækja félagið í framtíðinni en nú hyggur hún á fjölmörg ferðalög í húsbílnum sem hún og maðurinn hennar eiga og hlakkar hún mikið til þess. 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit