26.06 2012

Ljóðabók til styrktar Sigurvon

Laugardaginn 30. júní mun Pétur Geir Helgason árita ljóðabók sína Sólrúnir í Vestfirsku Versluninni frá 12:00 -15:00, eða á meðan lager endist, bókin kostar 2.000 krónur. Einnig geta þeir, sem þegar hafa keypt bókina, fengið hana áritaða. Bókina tileinkar hann minningu eiginkonu sinnar Óskar Norðfjörð Óskarsdóttur sem lést í janúar 2008 en ánafnar Krabbameinsfélaginu Sigurvon á Ísafirði hluta ágóðans. 

Pétur Geir fæddist 15. nóvember 1932 á Langeyri við Álftafjörð. Eftir gagnfræðaskóla hóf hann vinnu hin ýmsu störf sem til féllu en fljótlega hneigðist vilji til að vinna störf sem tengdust sjávarútvegi s.s. fiskvinnslu og sjómennsku og hefur svo verið mest allt lífshlaupið.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit