15.06 2012

Hægt að greiða happdrættismiða til 17. júní


Nú eru síðustu forvöð að greiða heimsenda miða frá happdrætti Krabbameinsfélagsins eða kaupa miða. Heimsenda miða má sjá undir valgreiðslur í heimabönkum eða netbönkum og þarf að greiða þá í síðasta lagi 17. júní.  Greiðslukortaþjónusta er í símum 540 1900 og 540 1917.

Dagana 16. og 17. júní verður opið í afgreiðslu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík frá kl. 10 til kl. 17. Einnig eru miðar seldir við happdrættisbíl  í Smáralindinni til og með 16. júní.

Vinningsnúmer verða birt á vefsíðu félagsins (krabb.is) og í dagblöðum 20. júní. Hringt verður í alla vinningshafa.

GBG.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit