12.06 2012

Kastað til bata konur leggja í hann

Á morgun, 13. júní, munu 14 konur leggja í tveggja daga veiðiferð í Sogið og Úlffljótsvatn undir formerkjunum Kastað til bata. Kastað til bata er samstarfsverkefni Krabbameinsfélags Íslands, Samhjálpar kvenna og styrktaraðila þar sem konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini er boðið í veiðiferð.

Markmið ferðarinnar err að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu  og veiða, ef heppnin er með. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og  verður tekið mið af líkamlegri getu þátttakenda. „Að veiða er að vona“. Á staðnum verða einnig félagar úr Samhjálp kvenna, félagi til stuðnings konum sem fengið hafa brjóstakrabbamein og starfsmaður frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.

Styrktaraðilar verkefninsins eru: Hótel Hengill, Hrygnan, Veiðihornið, Arion banki, Landsnet, Ellingsen og síðast en ekki síst Stangaveiðifélag Reykjavíkur



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit