12.06 2012

Vitundarvakning á lungnakrabba

Morgunblaðið fjallaði um nýja heimasíðu um lungnakrabbamein og söfnun fyrir ómspeglunartæki í helgarblaði sínu, 11. júní 2012. 

„150 manns greinast með lungnakrabbamein árlega á Íslandi, þetta er annað algengasta krabbameinið bæði í körlum og konum og það krabbamein sem flestir látast úr. Allt að 120 til 130 manns deyja árlega úr þessum sjúkdómi svo þetta er verulegt vandamál,“ segir Hrönn Harðardóttir lungnalæknir.

Netsíða til vitundarvakningar

Ný heimasíða hefur litið dagsins ljós, lungnakrabbamein.is sem opnaði á dögunum. Um er að ræða samstarfsverkefni Landspítalans og fimm lyfjafyrirtækja. „Heimasíðan á eftir að bæta upplýsingaflæði til sjúklinga og aðstandenda. Það hafa ekki verið til nægjanlegar upplýsingar á íslensku um sjúkdóminn í því formi sem sjúklingar þurfa,“ segir Hrönn. Hún segir heimasíðuna mikilvæga í þeirri vitundarvakningu sem þörf er á og mun hún þjóna fjölbreyttum tilgangi.

„Heimasíðan mun koma fólki í tengsl við rétta tengla og stuðningsnet. Hún mun líka vera notuð fyrir fagfólk en þarna eru greinar og upplýsingar sem það getur sótt í. Við munum einnig nota síðuna til kennslu en það eru hundrað hjúkrunarnemar og fimmtíu læknanemar árlega sem þurfa að læra um sjúkdóminn,“ bætir lungnalæknirinn við.

Sparnaður hjá Landspítalanum

Auk heimasíðunnar stendur yfir söfnun fyrir berkjuómspeglunartæki á Landspítalann sem mun gagnast við krabbameinsleit við lungu og greiningu annarra sjúkdóma á svipuðum stað.

„Þetta er speglunartæki með myndavél framan á sem getur skoðað ofan í öndunarveginn. Það sem er síðan sérstakt við þetta tæki er að það er hægt að gera ómun og kíkja á bak við berkjavegginn. Það er síðan hægt að stinga á æxli eða eitla sem eru þar sem ekki er hægt að sjá þegar kíkt er með myndavélum,“ segir Hrönn. Tækið hefur í nokkurn tíma verið í forgangi á tækjakaupalista Landspítalans en sökum mikils sparnaðar hefur spítalinn ekki séð sér fært að kaupa búnaðinn.

„Bara speglunartækið sjálft kostar 5,6 milljónir án virðisaukaskatts og er komið upp í 6,8 milljónir með virðisaukaskatti. Tækjakaupasjóður Landspítalans hefur ekki getað fjármagnað nein kaup undanfarin tvö ár. Öll þau tæki sem hafa verið keypt á Landspítalann á þessum tíma hafa verið keypt með söfnunarfé eða styrk,“ segir Hrönn.

Tilfellum fer fækkandi

Hrönn svarar því aðspurð að eitthvað hafi dregið úr lungnakrabbameinstilfellum upp á síðkastið. „Það hefur verið fjölgun allt fram að þessum tíma en við erum sjá það á síðustu misserum að kúrfan er aðeins á leið niður á við frekar en upp á við. Við þökkum það náttúrulega hörðum reykingaráróðri og það má ekki láta deigan síga þar. Við verðum að halda áfram og ná betri tökum á vandanum.“

Hrönn er staðráðin í því að ekki megi draga úr baráttunni gegn reykingum. „Líkurnar á lungnakrabbameini aukast því meira og því lengur sem reykt er. Ef þú ert búinn að vera hættur í fimmtán ár þá minnka líkurnar allt niður í tvöfalda áhættu á sjúkdómnum,“ segir Hrönn að lokum.

Þeir sem vilja styrkja söfnunina er bent á að hafa samband við Hrönn eða Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlækni og prófessor, í gegnum skiptiborð Landspítalans.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit