- Allur söluhagnaður Nicotinell lyfjatyggigúmmísins í Mottumars rennur til Krabbameinsfélagsins fimmta árið í röð
- Undanfarin fimm ár hafa um 8 milljónir króna safnast fyrir félagið með þessum hætti
- 15.646 Nicotinell pakkningar seldust í mars og er hlutur Krabbameinsfélagsins 1.564.600 krónur
Heilsuvörufyrirtækið Artasan, sem er umboðsaðili fyrir Nicotinell lyfjatyggigúmmíið á Íslandi, afhenti í morgun Krabbameinsfélaginu styrk að upphæð 1.564.600 krónur. Allur söluhagnaður Nicotinell í marsmánuði stendur undir styrknum en það er nikótínlyf sem er notað til þess að vinna gegn reykingaþörf og fæst í formi tyggigúmmís, plásturs og munnsogstaflna. Auk þess að gegna því hefðbundna hlutverki að hjálpa fólki að hætta að reykja þá hefur sala lyfsins í marsmánuði nýst til styrktar Krabbameinsfélaginu í formi fjárhagsstuðnings. Þar með er haldið í fimm ára hefð, því undanfarin fimm ár hefur alls um 8 milljóna króna söluhagnaður tyggigúmmísins runnið til Krabbameinsfélagsins. Alls voru seldir 15.646 pakkar af Nicotinell á meðan á Mottumars-átakinu stóð.
Mottumars er mikilvægur viðburður fyrir Krabbameinsfélagið en afrakstur söfnunarinnar í mánuðinum stendur alfarið undir kynningar- og fræðslustarfi um krabbamein hjá körlum. Í ár söfnuðust 28,9 milljónir á vefsíðu átaksins, www.mottumars.is, þar sem 3000 einstaklingar og 270 lið skráðu sig til leiks. Til gamans má geta að meðalskeggvöxtur karlmanna er 1,25cm á mánuði og samanstendur karlmannsskeggið af um það bil 30.000 hárum.
Fjöldi fyrirtækja lét söluhagnað eða annar konar stuðning renna til átaksins Mottumars en enn er verið að skila inn styrkjum til félagsins. Því verður bráðlega hægt að taka saman heildarupphæðina sem safnaðist í Mottumars í ár.
„Við erum þakklát þeim mikla fjölda sem lagði okkur lið í Mottumars 2012 og það er einstaklega ánægjulegt að fyrirtæki eins og Artasan standi svona myndarlega að átakinu með okkur. Bæði með fjárframlagi en ekki síður með því að vekja athygli á baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum og þá ekki síst lungnakrabbameini“, sagði Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins við afhendingu styrksins.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Jón Viðar Stefánsson frá Artasan afhenda Ragnheiði Haraldsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélagsins, styrkinn.