Það hefur vart farið framhjá fólki að í gangi er hið árlega mottumars átak Krabbameinsfélagsins og beinist átakið gegn brabbameini í körlum. Árlega greinast á Íslandi 716 karlar með krabbamein en árlega deyja að meðaltali 250 karlmenn af völdum einhverskonar krabbameins.
Eyjamenn hafa undanfarin ár ekki látið sitt eftir liggja í Mottumars og árið í ár er engin undantekning. Í dag eru skráðir 35 einstaklingur frá Vestmannaeyjum í keppnina og Jón Björn Marteinsson safnað mestu af þeim. Jón Björn lést í síðustu viku úr meini sínu en hann hafði þá barist við sjúkdóm sinn síðan 2006.
Í liðakeppninni eru einungis tvö lið skráð frá Vestmannaeyjum og eru það starfsmenn Miðstöðvarinnar sem hafa safnað mestu.
Í tilefni af Mottumars átakinu ákváðu starfsstúlkur Íslandsbanka í Vestmannaeyjum að gleðja samstarfsmenn sína í bankanum og hjá Sjóvá með því að gefa þeim glæsilegar slaufu mottur. Drengirnir í bankanum tók sig svo sannarlega vel út með motturnar sínar en á sama tíma báru stelpurnar í bankanum rauðar slaufur.