Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8 kallar heilbrigðisyfirvöld til samfundar við einstaklinga sem hafa reynslu af heilbrigðiskerfinu. Reynslu- og fagþekking munu mætast og málin verða rædd.
Fimmtudaginn 23. febrúar mun Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélags Íslands halda örráðstefnuna: Eru lögbundin réttindi krabbameinssjúklinga virt? Ráðstefnan verður milli klukkan 16:30-18:00 að Skógarhlíð 8.
Guðríður Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri Velferðarráðuneytinu, mun fjalla um framkvæmd laga um réttindi sjúklinga. Vilhelmína Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs Landspítalans, setur fram og reifar spurninguna: Getur heilbrigðisþjónustan staðið sig betur? Tveir einstaklingar munu einnig deila reynslu sinni af samskiptum við heilbrigðiskerfið. Fundarstjóri er Laura Sch. Thorsteinsson, verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu.
Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ásdís Káradóttir, hjúkrunarfræðingur Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands, sími 540 1900
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, sími 540 1900
Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands, sími 540 1900, gsm. 6930175