Allt frá stofnun Krabbameinsfélags Íslands hefur félagið notið mikils velvilja almennings og af og til berast félaginu erfðagjafir. Á síðasta ári, sem var sextíu ára afmælisár félagsins, bárust tvær veglegar erfðagjafir, annars vegar samkvæmt erfðaskrá Andrésar Tómassonar, hins vegar samkvæmt erfðaskrá Baldurs Pálmasonar og Guðnýjar S. Óskarsdóttur. Krabbameinsfélagið er mjög þakklátt fyrir þann hug sem þau hafa borið til félagsins, en slíkar erfðagjafir skipta mjög miklu máli fyrir starfsemi félagsins.
Andrés Tómasson arfleiddi Krabbameinsfélagið að helmingi eigna sinna. Andrés var Reykvíkingur, fæddur 1969 og lést 2010. Hann nam iðnrekstrarfræði, viðskiptafræði og hagfræði og starfaði í Landsbankanum. Andrés hafði mikinn áhuga á stangveiði og lestri góðra bóka.
Baldur Pálmason og Guðný S. Óskarsdóttir arfleiddu Krabbameinsfélagið að helmingi eigna sinna. Baldur var fæddur í Köldukinn á Ásum í Austur-Húnavatnssýslu árið 1919 og lést 2010. Hann ólst upp á Blönduósi, lauk prófi frá Verslunarskóla Íslands og starfaði í nokkur ár í verslun og í heildsölu. Lengstan hluta starfsævi sinnar vann Baldur hjá Ríkisútvarpinu sem varadagskrárstjóri og sá meðal annars um barnatíma og bókaþætti. Hann var mikill ljóðaunnandi en jafnframt ljóðskáld og sendi frá sér þrjár ljóðabækur. Guðný kona Baldurs var fædd í Reykjavík 1925 en lést úr krabbameini árið 1990. Heimili Guðnýjar og Baldurs var við Egilsgötu í Reykjavík.