Húsfyllir var á ráðstefnunni Kynlíf og krabbamein sem haldin var 19. janúar síðastliðinn í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Ráðstefnan var haldin í tengslum við verkefnið Kynlíf og krabbamein, samstarfsverkefni Novartis, Sanofi og Landspítala Háskólasjúkrahúss.
Hollenski læknirinn og kynfræðingurinn Woet Gianotten fjallaði um það hvernig krabbameinsmeðferð hefur áhrif á kynlíf og kyngetu og síðast en ekki síst mikilvægi þess að ræða á eðlilegan og opinskáan hátt um krabbamein og áhrif þess á kynlíf. Hildur Björk Hilmarsdóttir og Steinar B. Aðalbjörnsson sem bæði hafa greinst með krabbamein sögðu frá sinni reynslu. Fundarstjóri var Friðbjörn Sigurðsson, krabbameinslæknir.
Hægt er að horfa á myndbönd með erindunum
hér.