Fimmtudaginn 2. febrúar 2012 klukkan 20:00 mun kærleikshópur Ástjarnarkirkju halda styrktar- og minningartónleika til minningar um Arndísi Þórðardóttur í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði.
Fjölmargir landsþekktir einstaklingar koma fram ásamt kór Ástjarnarkirkju og Karlakór Selfoss. Miðaverð er 2.000 og rennur ágóði tónleikanna beint til Krabbameinsfélags Íslands.
Miðasala er alla daga nema laugardaginn 21. janáur frá 14:00-18:00 í Ástjarnarkirkju, Kirkjuvöllum 1 í Hafnarfirði eða í síma 565-5622. Einnig er hægt að kaupa miða gegn símgreiðslu í síma 862-4675 utan almenns sölutíma.