18.01 2012

Húmorinn með í svefnherbergið

Í Morgunblaðinu í dag, 18. janúar 2012 er viðtal við Dr. Woet Gianotten sem mun halda erindi á örráðstefnu Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands sem haldin verður 19. janúar klukkan 16:30 til 18:00. Þar munu einnig Steinar Aðalbjörnsson og Hildur Björk Hilmarsdóttir greina frá reynslu sinni. 

Greinin í Morgunblaðinu

Dr. Woet Gianotten hefur starfað um árabil við lækningar og ráðgjöf á sviði kynfræði (sexology) við háskólasjúkrahúsin í Utrecht og Rotterdam í Hollandi. Sérhæfing hans felst í ráðgjöf og meðferð um kynheilsu þar sem sjúkdómar, líkamleg fötlun og læknisfræðileg inngrip eru meginástæða kynlífsvanda skjólstæðingsins.

Algengt að dragi úr löngun

Þegar dregur úr kynlífslöngun eftir krabbameinsmeðferð segir Gianotten í fyrsta lagi mikilvægt að gera greinarmun á kynferðislegri andúð og því að dragi úr löngun og áhuga fólks. Andúðin skapist þegar fólk elski ekki maka sinn lengur og sé í nöp við hann. Að það dragi úr lönguninni sé hins vegar algengur fylgifiskur krabbameins og krabbameinsmeðferðar. En ástæður fyrir því geta verið skortur á nauðsynlegum hormónum, aukaverkanir af lyfjum, blóðleysi, þreyta, tilfinningalegt umrót og eymsli við kynmök. Svo aðeins fátt eitt sé nefnt.

„Það er mikilvægt að greina þarna á milli því annars getur fólk talið sér trú um að það að finna ekki til löngunar sé til marks um það að þau elski ekki lengur hvort annað. Sé um raunverulega andúð að ræða getur fólk þurft á aðstoð að halda við að bjarga sambandinu. En hafi einfaldlega dregið úr áhuga fólks tímabundið má grípa til ýmissa ráða. Stundum reynist vel að gefa fólki nauðsynlega hormóna eins og testósterón og svo getur þurft að byggja upp nánd á ný eftir mikla fjarveru í veikindunum,“ segir Gianotten.

Að njóta þess sem hægt er

Hann mælir með því að pör reyni að breyta samskiptamynstri sínu þegar kemur að kynlífinu. Það sé t.d. mikilvægt fyrir heilbrigða makann að eiga frumkvæðið. Þá sé mikilvægt að muna að annar aðilinn er ef til vill ekki tilbúin/n til að fara alla leið og getur átt erfitt með að ná fullnægingu. Því sé mikilvægt að láta vel hvort að öðru eins og hægt er en festa sig ekki í að »þurfa að« hafa fullar samfarir. Það verði oft til þess að of mikil spenna skapist og fólk einblíni á það sem ekki tekst frekar en að njóta þess sem hægt er að gera. Þetta auðveldi fólki líka að endurheimta nánd í sambandinu.

Húmorinn verður að vera með

Gianotten minnir fólk líka á að gleyma ekki húmornum í svefnherberginu. Stundum gangi ekki allt sem skyldi og þá sé sérstaklega mikilvægt að geta bara slegið því saman upp í grín. Eftir langt kynlífshlé geti verið erfitt að byrja aftur. Þetta sé svolítið eins og með íþróttir, það sé ekki auðvelt að byrja en þegar fólk sé komið af stað uppgötvi það hvað íþróttirnar geti verið góðar.

Til að auka nánd í sambandinu mælir Gianotten með því að gera alls konar hluti saman eins og að fara í sund og gufubað, dansa og taka til hendinni heima fyrir. Þá sé mikilvægt að makinn sem enn hafi fulla kynlífslöngun reyni að tæla maka sinn en um leið að gera makanum ljóst að hann/hún vilji nánd og krefjist ekki „fullrar frammistöðu“.

Loks sé mikilvægt að vera óhrædd/ur að ræða þessi mál við lækninn og muna að hann hefur ekki endilega frumkvæðið að slíkri umræðu en geti gefið mörg góð ráð sjái sjúklingurinn sér fært að opna sig.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit