Þann 19. janúar 2012 mun Ráðgjafaraþjónusta Krabbameinsfélagsins halda örráðstefnuna Kynlíf og krabbamein í samstarfi við verkefnið
Kynlíf og krabbamein, samstarfsverkefni Novartis, Sanofi og Landspítala Háskólasjúkrahúss.
Kvöldfréttir Stöðvar 2 fjölluðu um ráðstefnuna þann 17. janúar og ræddu við Steinar Aðalbjörnsson um reynslu hans en hann barðist við eistnakrabbamein og mun segja enn frekar frá sinni reynslu á örráðstefnunni.
Þar mun einnig hollenski læknirinn og kynfræðingurinn Woet Gianotten fjalla um það hvernig krabbameinsmeðferðhefur áhrif á kynlíf og kyngetu og síðast en ekki síst mikilvægi þess að ræða á eðlilegan og opinskáan hátt um krabbamein og áhrif þess á kynlíf og Hildur Björk Hilmarsdóttir líka greina frá reynslu sinni ásamt Steinari. Fundarstjóri verður Friðbjörn Sigurðsson, krabbameinslæknir.