Hádegisfyrirlestur undir yfirskriftinni Hreyfing - þjálfun var haldin miðvikudaginn 11. janúar 2012 í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Hannes Bjarni Hannesson, sjúkraþjálfari BSc sem starfar á Landspítalanum á blóðmeinadeild og situr þar einnig í þverfaglegu endurhæfingarteymi fyrir krabbameinsgreinda hélt þar fyrirlestur fyrir viðstadda.
Í fyrirlestrinum stiklaðaði hann á stóru varðandi aukaverkanir af hreyfingarleysi á líkamann sem og áhrif krabbameins og krabbameinsmeðferðar (afleiðingar lyfjameðferðar, skurðaðgerðar og geislameðferðar) á líkama og sál. Hann fjallaði um mismunandi leiðir sem geta hentað hverjum og einum.
Myndband með fyrirlestrinum má sjá
hér.