10.01 2012

Það er algjör vitleysa að reykja!

Erum við ekki öll sammála um það? Þess vegna hefur Þjóðminjasafn Íslands ákveðið, í samstarfi við Krabbameinsfélagið, Landlæknisembættið og Prentsmiðjuna Odda, að bjóða öllum grunnskólanemendum í 7.-10. bekk að taka þátt í samkeppni um hönnun og gerð á nýju tóbaksvarnarplakati. Samkeppnin er haldin í tilefni af sýningunni Þetta er allt sama tóbakið! sem nú stendur í Horni Þjóðminjasafnsins. 

Til mikils er að vinna en fyrir þrjú bestu plakötin verða eftirfarandi verðlaun veitt:
  1. verðlaun – 1 stykki iPad 2 16GB Wi-Fi
  2. verðlaun – 1 stykki iPod touch 8GB
  3. verðlaun – 1 stykki iPod touch 8GB
Að auki ætlar Prentsmiðjan Oddi að prenta sigurplakatið og mun það fara í dreifingu. Einnig munu allir þeir sem lenda í þremur efstu sætunum fá eintak af ritinu Hlutavelta tímans: menningararfur á Þjóðminjasafni. Bókin gefur greinargott yfirlit um íslenska menningarsögu og þjóðhætti.

Tillögunum skal skilað til Þjóðminjasafns Íslands, Suðurgötu 41, 101 Reykjavík eigi síðar en föstudaginn 27. janúar 2012. Skila skal inn fullunnum plakötum, sem mega ýmist vera í stærð A3 eða A2, þar sem fram kemur boðskapur gegn hvers kyns tóbaksnotkun. 

Allir grunnskólanemendur í 7.-10. bekk geta tekið þátt í keppninni, einstaklingar jafnt sem hópar, og eru þátttakendur hvattir til að láta sköpunargleðina ráða för við hönnun og gerð plakatsins. 

Það er því tilvalið fyrir þá sem hafa áhuga að kíkja í heimsókn á Þjóðminjasafnið og skoða sýninguna Þetta er allt sama tóbakið! til þess að fá innblástur. Börn og unglingar að 18 ára aldri greiða ekki aðgangseyri að safninu.

Í dómnefnd sitja fulltrúar frá Þjóðminjasafni Íslands, Krabbameinsfélaginu og Prentsmiðjunni Odda.
Úrslit verða kunngjörð á Safnanótt, föstudaginn 10. febrúar 2012.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit