06.01 2012

Bleik svíta á Icelandair Hótel Reykjavík Natura

Icelandair-hótel, Reykjavík Natura, hefur innréttað Bleika svítu sem er einstaklega glæsileg, innréttuð í nútímalegum stíl með rómantísku yfirbragði. Bleika svítan er tileinkuð baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Hluti af söluágóða herbergisins mun renna til Krabbameinsfélags Íslands ár hvert. Dvöl í bleiku svítunni styrkir það góða starf sem félagið vinnur í samfélaginu. 

Bleika svítan er skreytt teikningum Eggerts Péturssonar, listamanns, af Flóru Íslands, ásamt upplýsingum um hvernig plöntur á Íslandi hafa verið notaðar til lækninga gegnum árin. Gestir sem gista í Bleiku svítunni fá aðgang að glæsilegri setustofu á fjórðu hæð hótelsins frá kl. 17:00 -23:00. Þar er tilkomumikið útsýni yfir Reyjavíkurflugvöll og Reykjanes. Léttar veitingar eru í boði auk þess sem gestir hafa aðgang að tölvu og þráðlausu neti. 

Tvíbreytt rúm „Queen“, stórt baðkar og sturta, baðsloppar, glæsileg setustofa, parket á gólfum, sími, LCD flatskjár, WIFI þráðlaust net (innifalið), buxnapressa, kæliskápur, kaffi og-te áhöld. Hárþurrka, myrkvunargluggjatjöld. Stærð svítunnar er c.a 43 fm. 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit