Gunnar Ármannsson sem hljóp fimm hlaup síðastliðið sumar til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands lenti í þriðja sæti í kosningu hlaup.is á langhlaupara ársins 2011. Gunnar hljóp samtals 272,1 km til styrktar Krabbameinsfélaginu og safnaði um 700 þúsund krónum í verkefninu
„Ég hleyp af því ég get það“.
Krabbameinsfélag Íslands óskar Gunnari innilega til hamingju með viðurkenningunga og þakkar honum um leið aftur fyrir stuðninginn með verkefninu
„Ég hleyp af því ég get það“.
Á myndinni eru sigurvegarar í kosningu hlaup.is á langhlaupara ársins. Talið frá vinstri, Helen Ólafsdóttir, Sigurbjörg Eðvarðsdóttir, Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Kári Steinn Karlsson, Sigurjón Sigurbjörnsson og Gunnar Ármannsson.
Myndin var fengin af vef hlaup.is