21.12 2011

Bleikar Kitchenaid-vélar til stuðnings Krabbameinsfélaginu

Einar Farestveit & co hf. selur bleikar Kitchenaid-hrærivélar og Kitchenaid-blandara til stuðnings Krabbameinsfélagi Íslands allan ársins hring.  

Samkvæmt samningi, sem Krabbameinsfélagið  og Einar Farestveit & co hf hafa gert með sér, fær Krabbameinsfélagið 10.000 krónur af hverri bleikri Kitchenaid-hrærivél og 5.000 krónur af hverjum bleikum Kitchenaid-blandara og hafa safnast 195.000 krónur á árinu.  „Við viljum leggja okkar að mörkum í baráttunni gegn krabbameini og finnst vel við hæfi að styðja hið frábæra og vel skipulagða starf sem Krabbameinsfélagið vinnur að málefnum krabbameina á Íslandi,“ sagði Hlöðver Þorsteinsson , framkvæmdastjóri,  þegar hann afhenti styrkinn. 

Einar Farestveit & co hf. hefur selt Kitchenaid hrærivélar á Íslandi í áratugi og hefur hrærivélin öðlast sérstöðu á heimilum fjölda landsmanna.  Vélarnar eru fáanlegar  í mörgum litum hjá  Einari Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28. 

Aðstandendur Krabbameinsfélagsins þakka Einari Farestsveit og viðskiptavinum þeirra innilega fyrir stuðninginn. 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit