26.10 2011

CrossFit iðkendur styrkja Krabbameinsfélagið

Laugardaginn 22. október lögðu margir leið sína í CrossFit Reykjavik og tóku æfinguna Grace til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands og átakinu Bleiku slaufunni. Þátttökugjald var 1.500 krónur og alls söfnuðust 118.721 krónur. 

Grace er 30 x Clean og Jerk, olympísk lyfting. Karlar voru með 60 kg lóð og konur með 40 kg eða þá þyngd sem hæfði getu hvers og eins. Gætt var að því að enginn væri að lyfta umfram getu og ofreyna sig. 

Krabbameinsfélag Íslands þakkar öllum þeim sem tóku þátt og CrossFit Reykjavik innilega fyrir stuðninginn. 
Myndir frá deginum má sjá hér.  


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit