- BYKO styrkir Krabbameinsfélagið um ríflega tvær milljónir.
Í tilefni af árveknis- og fjáröflunarátakinu Bleiku slaufunni ákvað BYKO að taka þátt í baráttunni gegn krabbameinum í október síðastliðnum. Viðskiptavinir voru minntir á átakið með því að verslanir og auglýsingar BYKO voru settar í bleikan búning og slaufur Krabbameinsfélagsins voru seldar í öllum verslunum fyrirtækisins. Að auki var ákveðið að styðja Krabbameinsfélagið með því að láta 10% söluandvirðis af um 250 vörutegundum, sem sérstaklega voru slaufumerktar í október, renna til félagsins. Þetta átak mæltist vel fyrir meðal viðskiptavina BYKO sem tóku þátt í stuðningnum við Krabbameinsfélagið með kaupum á þessum vörum. Alls söfnuðust með þessum hætti 2.038.012 kr. sem í dag voru afhentar Krabbameinsfélaginu.
Myndatexti: Guðmundur Jónsson, forstjóri BYKO, afhendir Ragnheiði Haraldsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélagsins, rúmar tvær milljónir sem söfnuðust í bleikum október í BYKO.