05.12 2011

Vel sótt örráðstefna

Örráðstefnan „Svona er lífið“ – Sorgin í margbreytilegri mynd var haldin 24. nóvember síðastliðinn. Örráðstefnan ver vel sótt og töluðu viðstaddir um að þeir hefðu verulega notið stundarinnar. 

Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélagsins setti ráðstefnuna og Brjánn Ingason hljóðfæraleikari, gaf síðan tóninn með því að spila á fagott. Anna Rós Jóhannesdóttir, yfirfélagsráðgjafi á Landspítala Háskólasjúkrahúsi fjallaði um hvernig sorgin birtist í fjölskyldum. Bryndís Einarsdóttir sálfræðingur hjá Heilsustöðinni flutti erindi um streitu samfara áföllum og sorg enBryndís hefur sérhæft sig í streitutengdum kvillum, kvíða, áföllum, sorg og heilsutengdum breytingum. K. Hulda Guðmundsdóttir sagði frá reynslu sinni við að missa maka í blóma lífsins, en maðurinn hennar dó úr krabbameini ungur að aldri. Séra Bernharður Guðmundsson flutti síðan erindi um sorg efri ára og fór í gegnum margbreytileika sorgarinnar. Að lokum sagði Ásdís Káradóttir, hjúkrunarfræðingur frá starfi Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. 
 
Viðstaddir gæddu sér síðan á piparkökum og heitu súkkulaði eftir ráðstefnuna og gafst kostur á að ræða við aðra og koma með spurningar. Hér má sjá myndir og myndbönd frá ráðstefnunni. 
 
Krabbameinsfélagið er áhugamannafélag rekið fyrir velvild almennings og eru örráðstefnur sem þessar og Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins liður í þeirri þjónustu sem fólk getur nýtt sér fyrir framlag almennings. 
 
 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit