Nemendur í 5AM í Setbergsskóla bjuggu til vinabönd og seldu nýverið til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands t.a.m. í Firðinum og Setbergi Hafnarfirði.
Þau bjuggu til á annað hundrað vinabönd og seldu á 100 krónur stykkið og að auki söfnuðu þau flöskum og dósum. Alls söfnuðu þau 20.000 krónum sem þau afhentu Krabbameinsfélaginu.
Aðstandendur Krabbameinsfélags Íslands þakka þeim innilega fyrir.
Á myndinni er Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands ásamt nemendunum sjö þeim, Júlíus, Gísla, Ara, Karólínu, Koldísi, Hlyn og Ísak.