22.11 2011

Dregið 24. desember í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins

Nú hafa verið sendir út miðar í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein veigamesta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameinsvarnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga, leit að krabbameini og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhagsstuðningi við félagið.
    
Í jólahappdrættinu fá konur senda happdrættismiða. Vinningar eru 188 talsins að verðmæti um 30,9 milljónir króna. Aðalvinningarnir eru tvær bifreiðar af gerðinni Kia Rio EX 1.4, hvor að verðmæti 3.198.000 króna. Þriðji aðalvinningurinn er bifreið eða greiðsla upp í íbúð að verðmæti ein milljón króna. Fimmtíu vinningar eru í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. Einnig eru 135 vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 24. desember.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru nú sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka eða netbanka og eiga þannig möguleika á glæsilegum vinningum. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8. Þeir sem vilja borga miðana með greiðslukorti geta hringt í síma 540 1900, en þar eru einnig veittar nánari upplýsingar um happdrættið. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa og tilkynna þeim um vinninga.

Um 1.400 krabbamein eru að meðaltali greind hér á landi á ári. Hjá konum er brjóstakrabbamein algengast og hjá körlum er það krabbamein í blöðruhálskirtli. Í öðru sæti er lungnakrabbamein hjá báðum kynjum og ristilkrabbamein í því þriðja. Um 11.000 einstaklingar sem fengið hafa krabbamein eru nú á lífi. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit