12.11 2011

Sjúklingar óttast aukinn lyfjakostnað

Erfitt verður fyrir marga krabbameinssjúklinga að fara að greiða fyrir lyf, verði frumvarp um það að lögum. Síðustu ár hefur lækniskostnaður þeirra aukist til muna, sagði Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, í viðtali við Fréttastofu RÚV þann 11.11.2011. Sjá viðtalið hér.

Velferðarráðherra hefur lagt fram á alþingi frumvarp sem miðar að því að lækka lyfjakostnað þeirra sem oft þurfa lyf á kostnað þeirra sem sjaldan þurfa þau. Frumvarpið kveður einnig á um að margir þeirra sem hafi fram til þessa fengið ókeypis lyf þurfi á næsta ári að fara að greiða fyrir þau. Í þeim hópi eru krabbameinssjúkir. Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, er ekki ánægð með frumvarpið.

„Nei þetta er ekki alveg eins og við vildum sjá það. Við vildum að það væri kveðið á um það í lögunum sjálfum að allir þeir sem eru alvarlega veikir fái fulla greiðsluþátttöku ríkisins," segir Ragnheiður.

Í frumvarpinu og meðfylgjandi reglugerð kemur fram að aðeins sjúklingar í líknandi meðferð í heimahúsi, lokastigs nýrnabilun eða geðklofa fá lyfin ókeypis. Ekkert þak verður á lyfjakostnaði. Þó geta þeir sem eru með mikla, varanlega og læknisfræðilega vel rökstudda þörf fyrir lyf sótt um fulla niðurgreiðslu þegar þeir eru búnir að greiða tæpar 65.000 krónur fyrir lyf á tólf mánaða tímabili. Ragnheiður segir mjög misjafnt hvort krabbameinssjúkir séu færir um að greiða fyrir lyf.

„Krabbamein leggst mjög misjafnlega á einstaklinga. Okkar skoðun er sú að þeir sem eru alvarlega veikir, með hvaða sjúkdóm sem er, þeir eigi að njóta mikillar greiðsluþátttöku, aðrir geti lagt meira af mörkum," segir Ragnheiður. Greiðslukostnaður sjúklinga í heilbrigðiskerfinu hafi aukist töluvert á síðustu árum.




Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit