07.10 2011

Nudd til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands

Nudd til styrktar Krabbameinsfélagi ÍslandsHeilsulindin Sóley Natura Spa, sem er á Hótel Natura við Reykjavíkurflugvöll, ætlar að styrkja Krabbameinsfélag Íslands í tilefni af Bleiku slaufunni í október með því að láta 10% af öllu nuddi renna til félagsins.

Ýmiss konar nudd er í boði svo sem heilsunudd eða klassískt vöðvanudd, íþróttanudd, sogæðanudd og svæðanudd. Þegar farið er í nudd í heilsulindinni er innifalið í verðinu aðgangur að sundlaug, gufubaði, þurrgufu og heitum potti. Sóley Natura Spa er tilvalinn staður til að slaka á og njóta lífsins og þar eru eingöngu notaðar vörur frá Sóley Organics. Allar nánari upplýsingar um nudd og aðra meðferð í Sóley Natura Spa má finna hér: http://soleynaturaspa.is/


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit