07.10 2011

Íþróttatoppar til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands

Íþróttatoppar til styrktar Krabbameinsfélagi ÍslandsSportís hefur gert tveggja ára samning við Krabbameinsfélag Íslands þar sem ein tegund af Casall-íþróttatoppum er seld til styrktar félaginu. Renna 20% af sölu þess topps til félagsins.

Topparnir verða merktir Bleiku slaufunni. Þeir verða til sölu í öllum verslunum sem selja Casall-vörurnar og má þar nefna verslanir Lyfju, Útilífs og allar helstu íþróttaverslanir landsins.

"Við erum mjög stolt af því að vera með í Bleiku slaufunni og vera styrktaraðilar Krabbameinsfélags Íslands. Þannig getum við lagt hönd á plóg í baráttunni gegn krabbameinum sem kemur svo víða við," segir Kristinn Kristjánsson, sölustjóri hjá Sportís. Sportís hyggur á enn frekari stuðning við Krabbameinsfélagið.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit