
Mjöll-Frigg selur handsápu til styrktar Krabbameinsfélaginu í október. Um er að ræða bleika fljótandi handsápu með blómalykt. Sápan er fáanleg í öllum helstu verslunum.
"Það skiptir okkur hjá Mjöll-Frigg miklu máli að leggja góðu málefni lið og við völdum að styrkja Krabbameinsfélagið og verkefnið Bleiku slaufuna," segir Gréta Björg Blængsdóttir, sölu- og markaðsstjóri fyrirtækisins.
Af hverjum bleikum handsápubrúsa af tegundinni Opera handsápa með blómailmi renna 30 krónur til Krabbameinsfélags Íslands.