
BYKO - verslanirnar styðja við átakið Bleiku slaufuna með því að gefa 10% af söluandvirði yfir 300 slaufumerktra vara til Krabbameinsfélags Íslands
"Þetta er liður hjá okkur í að vekja athygli á Bleiku slaufunni, árveknis- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins í þágu kvenna. Um leið viljum við undirstrika að byggingavöruverslanir eru ekki bara fyrir karla, konur kunna líka að bora í vegg og taka ríkan þátt í að halda heimilinu við og fegra," segir Ingi Þór Hermannsson, markaðsstjóri BYKO.
Slaufumerktar vörur má finna í flestum deildum BYKO og má þar nefna málningu, borvélar, rafmagnstæki, ljós, flísar, parkett, blöndunartæki og hefilbekki svo dæmi séu tekin.