22.07 2011

Hvað eru Stómasamtök Íslands?

Stómasamtök Íslands eru hagsmunasamtök þeirra, sem gengist hafa undir stómaaðgerðir, þ.e. ristilstóma, garnastóma, þvagstóma og þeirra sem eru með garnapoka og nýblöðru. Um helmingur félagsmanna hafa greinst með krabbamein í ristli eða endaþarmi en helmingur hefur fengið illvíga bólgusjúkdóma í ristil eða þvagblöðru. Samtökin voru stofnuð 16. október 1980, en fram að þeim tíma hafði sérstakur undirbúningshópur starfað í þrjú ár. 

Aðildarfélag Krabbameinsfélags Íslands og ÖBÍ

Stómasamtökin voru frá upphafi eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélags Íslands og hafa ávallt haft aðstöðu í húsnæði þess, en þar eru fundir samtakanna haldnir. Stómasamtökin gerðust aðilar að Öryrkjabandalagi Íslands 2004 og hafa tekið virkan þátt í starfi bandalagsins.

Félagsfundir og fréttabréf

Stómasamtökin halda reglulega félagsfundi fyrsta fimmtudag hvers mánaðar frá október- maí, að aðalfundi meðtöldum. Á þessum fundum er megináhersla lögð á kynningu á nýjungum í stómavörum, auk fræðslufunda með fagaðilum,svo sem læknum, hjúkrunarfræðingum og sálfræðingum. Einnig er hópur á Akureyri sem heldur fundi einu sinni til tvisvar á ári. Stómasamtökin gefa út fréttabréf, sem kemur út fjórum til fimm sinnum á ári, en það er m.a. notað til að auglýsa fundi samtakanna.

Heimsóknarþjónusta

Mikilvægasta starf Stómasamtakanna hefur ávallt verið heimsóknarþjónusta. Hún felst í því að sjúklingur, sem á fyrir höndum að fara í stómaaðgerð eða er nýkominn úr henni, fær heimsókn frá félaga úr samtökunum, sem hefur nokkurra ára reynslu sem stómaþegi. Sjúklingurinn er ýmist heimsóttur heima hjá sér eða á sjúkrahúsi, allt eftir aðstæðum. Tengiliðir okkar við sjúkrahúsin eru stómahjúkrunarfræðingar eða aðrir sem þekkja vel til stómaaðgerða. Það hefur margsinnis sýnt sig að sá sem þiggur slíka heimsókn er mun betur undir það búinn að takast á við lífið eftir aðgerð heldur en sá sem ekki hefur þegið hana.

Starf unga fólksins

Hjá Stómasamtökunum er starfandi hópur yngra fólks sem hittist öðru hverju og ræðir sín hugðarefni og vandamál. Þetta er fólk á aldrinum 20 til 40 ára. Hópur þessi hefur verið mjög virkur undangengin ár enda hefur orðið talsverð fjölgun á því að yngra fólk fari í stómaaðgerð. Það var þessi hópur yngra fólks, sem lét hanna veggmynd til kynningar á félaginu og starfsemi okkar. Veggmyndin hangir uppi á flestum stundstöðum landsins.

Erlend samskipti

Norræn stómasamtök hafa um langt árabil haft með sér samstarf og haldið ráðstefnur ýmist annað hvert ár eða jafnvel á hverju ári. Á undanförnum árum hafa samtökin einnig sótt Evrópuþing og alheimsþing. Hefur þar komið berlega í ljós að íslenskt heilbrigðiskerfi stendur sig nokkuð vel í samanburði við flest önnur ríki. Á Evrópuvettvangi er aðallega unnið að þvi að bæta hag stómaþega í Austur-Evrópu sem er á stórum svæðum skelfilegur vegna skorts á sérhæfðum umbúðum og hjálpartækjum. Á Evrópuþingi sem haldið var nú nýlega í Úkraínu var formaður Stómasamtaka Íslands, Jón Þorkelsson, kosinn í stjórn Evrópusamtakanna, EOA (sjá ostomyeurope.org).

Stómasamtökin leggja mikla áherslu á að allir þeir sem hafa gengist undir stómaaðgerðir, hvort sem er af völdum krabbameins eða bólgusjúkdóma, geti tekist á við lífið og lifað lífinu á eðlilegan hátt eins og aðrir. Kjörorð okkar er: Innihaldsríkt líf með stóma!

Vefsíða Stómasamtaka Íslands er stoma.is, netfang stoma@stoma.is og síminn er 
847 0694. 

Jón Þorkelsson er formaður Stómasamtaka Íslands og situr í stjórn Evrópusamtaka stómafélaga.
Sigurður Jón Ólafsson er fyrrum formaður Stómasamtaka Íslands.
 

  



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit