Krabbameinsfélagið Sigurvon fagnar 10 ára afmæli á laugardag með veislu. Félagið var stofnað árið 2001 og er starfsvæði þess norðanverðir Vestfirðir. Tilgangur félagsins er að styðja baráttuna gegn krabbameini.
Afmælishátíðin hefst kl. 11 á laugardagsmorgun með fyrirlestri á Hótel Ísafirði. Þar mun Lára G. Sigurðardóttir læknir hjá Krabbameinsfélagi Íslands og doktorsnemi í lýðheilsu, fjalla um konur, lífstíl og krabbamein. Rætt verður algengustu krabbamein hjá konum og helstu einkenni þeirra, en rekja má talsverðan hluta krabbameina til óheilbrigðs lífernis. Þá verður fjallað um hvernig hægt er að breyta um lífsstíl. Að fyrirlestrinum loknum býður Sigurvon upp á súpu og kaffi.