
Bleika kvennakvöldið var haldið í Hörpu, Reykjavík, þann 27. október 2011. Yfir 1000 konur komu þar saman og skemmtu sér vel. Hér má sjá
myndir frá kvöldinu en einnig var sett saman
myndband sem má sjá hér.
Dagskráin var þétt og var tekið á móti konunum af
Ísdrottningum fyrir framan
Klakastyttu og söng
Lögreglukórinn fyrir þær. Rauður dregill leiddi þær að sölu- og kynningarbásum frá ýmsum fyrirtækjum og hönnuðum og þar tók
Duo de Mano einnig á móti þeim með ljúfa tóna sem og fordrykkur frá
Ölgerðinni. Á básunum var ýmis varningur og rann a.m.k. 20% af ágóða sölunnar til Krabbameinsfélagsins. Fyrirtækin sem voru með sölu- og kynningarbása voru:
Krabbameinsfélag Íslands, LukeArt & design,
Nostrum,
SunBird, Forlagið, Sóley Organics,
Bláa Lónið,
Gyðja, Þóra Björk Schram,
Yggdrasill, Guðrún Þórisdóttir,
Frigg-Mjöll, Forval, Forever Living, Sportís, Besta Skinn/Fjóla,
FærID,
Salkaforlag og
Orkan. Að auki var Krabbameinsfélagið með bás og gat fólk skráð sig sem
Velunnari eða Félagsmaður Krabbameinsfélagins og Fagráð hjúkrunarfræðinga var með fræðslubás þar sem konur svöruðu ýmsum spurningum og sett var upp fræðsluhappdrætti þar sem í vinning var Canon myndavél frá
Nýherja og mánaðarkort í líkamsrækt og Spa hjá
Nordica Spa.
Léttar veitingar frá
Hörpudiski voru í boði og konur gátu keypt sér drykki á bar þeirra. . Svo byrjaði dagskráin með látum þegar
Bryndís Ásmunds og
Brynja Valdís, kynnar kvöldsins, stigu á stokk og Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, þakkaði öllum fyrir komuna sem og öllum stuðningsaðilum. Andrea Gylfadóttir og Marelbandið tóku svo lagið og fimleikafélagið
Gerplurnar sýndu listir sýnar.
Flensborgarkórinn söng síðan fyrir viðstadda og Jógvan og Friðrik bræddu hjörtu viðstaddra. Loks var tísku- og danssýning undir stjórn Sigrúnar Birnu Blomsterberg. Það voru fyrirsætur frá
Eskimo models og
Elite models sem að sýndu fatnað frá ýmsum hönnuðum úr
Fatahönnunarfélagi Íslands:
Andersen & Lauth, Ásta Creative, Birna, Forynja,
Hanna Felting,
Lukaart & Design,
Lykkjufall,
María Lovísa,
Nostrum,
Rósa Design,
Sonja Bent og
Farmers Market. Síðan steig
Dikta á svið og loks leikhópurinn
Alvöru menn. Á milli atriða skemmtu töframennirnir Daníel og Einar viðstöddum og DJ Fox sá um tónlistina.
Happdrættismiði fylgdi öllum aðgangsmiðum á boðið en einnig gafst viðstöddum tækifæri að kaupa miða á staðnum til að auka vinningslíkur sínar. Í vinning var: Þrjú mánarðarkort í líkamsrækt og Spa hjá
Nordica Spa,
Forever Living dekurkarfa frá Jónu Björg og Lóu, Slá frá
Ásta Clothes, tvær ferðir fyrir tvo með
kynnisferðum, hátíðarkvöldverður fyrir tvo á
Silfur, Gjafaaskja frá
Bláa Lóninu,
Farmers Market trefill og gjafakarfa frá
Forval, Silfurhálsmen frá
Leonard, sex mánaðarkort í heilsurækt og baðstofu
World Class og gjafakarfa með snyrtivörum frá
Forval. Einungis einn vinningur gekk ekki út um kvöldið en hann var á miða 1272 og getur eigandi þess miða komið í Skógarhlíð 8 og vitjað vinningsins en það er gisting fyrir tvo með morgunverð og fjögurra rétta kvöldverð á
Hótel Rangá sem og dekurgjafabréf frá
Óskaskrín.
Nóg var sem sé um dýrðirnar í skemmtiatriðum kvöldsins og gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi. En Bleika kvennakvöldið hefði aldrei getað heppnast svona vel nema ef væri fyrir tilstillan frábærra stuðnings- og styrktaraðila, sem og viðburðastýrning frá
Íslandsmót. En stuðnings- og styrktaraðilar eru hér í starfrófsröð.
Blómahönnun,
Byko, Control - hár og snyrting,
Exton,
Garri,
Grænn markaður,
Harpa,
Hreyfill,
Hörpudiskur, Illusion,
Íslandsmót,
Íslensir grænmetisbændur,
Ístex.
Kjarnafæði,
Myllan,
Nova, NYX,
Orkan,
Pappír,
Prentmet,
Saffran,
Sérferðir, S
láturfélag Suðurlands,
Sóley Organics,
Sportís,
Verkís,
Yggdrasill, zYz Design,
Ölgerðin