17.10 2011

Bleik kvennakvöld

Bleik kvennakvöld verða haldinn í lok október. Þann 26. október verður Bleikt kvennakvöld í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri og þann 27. október verður Bleikt kvennaboð í Hörpunni í Reykjavík. 

Þann 27. október mun Krabbameinsfélagið standa fyrir Bleika kvennakvöldinu í Hörpunni. Bleika kvennakvöldið er árveknis- og fjáröflunarkvöld þar sem um 1000 konur koma saman og eiga góða og skemmtilega kvöldstund. Ýmis frábær skemmtiatriði verða á dagskrá svo sem tískusýning, tónlistaratriði, dans og fimleikar. Miðaverð er 1.200 krónur.

Þú getur einnig keypt miða á kvennakvöldið fyrir þig og þína á www.bleikabodid.is og sótt svo miðana til Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8. Hverjum miða fylgir happdrættismiði en dregið verður úr happdrætti á kvöldinu og verða þar fjöldi skemmtilegra vinninga. 

Athugið að takmarkað miðaframboð er hjá okkur en þarna er tilvalið tækifæri fyrir samstarfskonur,vinkonur og fjölskyldumeðlimi að eiga huggulega kvöldstund saman. 

Í Hofi á Akureyri verður einnig Bleikt kvennakvöld haldið þann 26. október. En allar nánari upplýsingar um það er að finna http://www.menningarhus.is/news/arvekni-gegn-krabbameini-bleika-bodid-i-hofi/ 






Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit