17.10 2011

Málþing um brjóstakrabbamein

Málþing um brjóstakrabbamein verður haldið í fundasal Arionbanka, Borgartúni 19 í Reykjavík, þriðjudaginn 18. október á vegum Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar og Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Yfirskrift málþingsins er: Stuðningur skiptir máli

Dagskrá málþingsins:

Kl. 19.30:

Jóna Einarsdóttir leikur létt lög á harmonikku

Kl. 20.00:

Börnin og samræðurnar í fjölskyldunni þegar krabbamein greinist. Nanna Sigurðardóttir félagsráðgjafi og verkefnisstjóri á Krabbameinsmiðstöð Landspítalans.

Veikindi og vellíðan – frá streitu til sáttar. Margrét Bárðardóttir sálfræðingur.

Að takast á við lífið eftir krabbamein – fýsileiki ráðgjafarmeðferðar. Rannveig Björk Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur kynnir meistaraverkefni sitt við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.

Í lokin leikur KK nokkur lög.

Fundarstjóri: Siv Friðleifsdóttir alþingismaður.

Málþingið, sem er öllum opið, er hluti af árveknisátaki um krabbamein hjá konum þar sem frætt er um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um brjóstamyndatöku og leghálskrabbameinsleit.

Stuðningsaðilar eru Arionbanki, Toppur og Estée Lauder.





 
     




Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit