14.10 2011
Stöndum vörð um heilbrigðisþjónustuna
"Formannafundur Krabbameinsfélags Íslands, haldinn á Akranesi 8. október 2011, lýsir áhyggjum af skerðingu á fjárveitingum til þjónustu við sjúklinga, bæði krabbameinssjúka og aðra, og hvetur stjórnvöld til að standa vörð um þá góðu heilbrigðisþjónustu sem byggð hefur verið upp hér á landi, bæði á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu," segir í ályktun frá fundinum.
"Við höfum verið stolt af því að vera í fremstu röð í heiminum og eigum að setja okkur það markmið að vera það áfram."