
Stúlkurnar í hönnunarfyrirtækinu Fær-ID eru aftur komnar af stað með átaksverkefnið sitt Gott fyrir gott, sem er bleik slaufa í formi nammihlaups. Hlaupið er framleitt af Nóa-Siríus fyrir Fær-ID og rennur allur ágóði af sölu vörunnar til Krabbameinsfélags Íslands.
Bleika slaufan hefur hingað til einkum verið þekkt sem skart til styrktar baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Í hugmynd Fær-ID, sem unnin var af Herborgu Hörpu Ingvarsdóttur og Þórunni Hannesdóttur, var markmiðið að reyna eitthvað nýtt og niðurstaðan varð bleik nammislaufa sem verður til sölu til októberloka.
Varan kallast Gott fyrir gott. Það eru fáir á móti því að fá sér (nammi)gott fyrir gott (málefni). Gottið er með ávaxtabragði og er án litarefna. Litnum á hlaupinu er náð fram með lit frá náttúrunnar hendi úr grænmetissafa, t.d. úr rauðrófum. Hver 100 gramma poki er seldur á 500 krónur og eru sölustaðir um allt land: N1, Iða, Mál og menning, Pósturinn, Skeljungur, Debenhams, Samkaup-Strax, Samkaup-Úrval, Nettó, Kaskó og Melabúðin.
Fyrirtækjum gefst einnig kostur á að kaupa 15 gramma poka fyrir viðskiptavini sína og starfsfólk. Litlu pokarnir koma í kössum sem eru eitt kílógramm að þyngd (um 66 einingar) og er verðið á þeim 5.000 krónur.
Grein þess var að finna í
Bleika slaufu blaði Krabbameinsfélagsins sem var gefið út þann 6. október.